föstudagur, 26. júlí 2013

Störfum hlaðnir.

Mjög athyglisvert var þegar maður nokkur fékk fangelsidóm upp á 6 mánaða inniveru í fangelsi hér á Íslandi fyrir umæli um lögreglu eða lögreglumann og uppástóð lögreglan að maðurinn hefði verið með hótanir og fynnst mér þetta vera á svolítið gráu svæði svo vægt sé tekið til orða. Vegna þess að lögreglan er sjálf á facebook og ef lögreglan vill ekki fá svona meldingar þá býður facebook upp á slíkt. Þannig að lögreglan þarf ekki að fá neinar meldingar ef svo ber undir en líkast til hafa þeir verið störfum hlaðnir en eiga ekki að láta það bitna á mönnum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli